40. fundur
utanríkismálanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 31. maí 2023 kl. 09:00


Mætt:

Bjarni Jónsson (BjarnJ) formaður, kl. 09:00
Diljá Mist Einarsdóttir (DME) 1. varaformaður, kl. 09:00
Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 09:00
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ), kl. 09:00
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 09:30
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:00
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:00
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 09:00
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:00

Birgir Þórarinsson var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vék af fundi kl. 10:30.

Nefndarritari: Gunnþóra Elín Erlingsdóttir

2009. fundur utanríkismálanefndar

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárliðnum var frestað.

2) 890. mál - Evrópska efnahagssvæðið Kl. 09:00
Á fund nefndarinnar komu Margrét Einarsdóttir og Bjarni Már Magnússon frá Háskólanum í Reykjavík og Maria Elvira Mendez Pinedo frá Háskóla Íslands sem kynntu umsagnir sínar við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Staðan í Rússlandi Kl. 10:10
Á fund nefndarinnar komu Árni Þór Sigurðsson sendiherra Íslands í Rússlandi sem tengdist fundinum í gegnum fjarfundarbúnað ásamt Maríu Mjöll Jónsdóttur og Veturliða Þór Stefánssyni.

Gestirnir fjölluðu um stöðuna og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 3. mál - þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið Kl. 10:35
Á fund nefndarinnar komu Jón Steindór Valdimarsson frá Evrópuhreyfingunni og Þorsteinn Pálsson. Gestirnir fjölluðu um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) 974. mál - alþjóðlegar þvingunaraðgerðir og frysting fjármuna Kl. 11:20
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með fresti til 4. júní nk.

6) 953. mál - afvopnun o.fl. Kl. 11:22
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með fresti til 4. júní nk.

7) Önnur mál Kl. 11:23
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:25